Grafarvogur Skrá viðburð
Allir viðburðir
Menning & fræðslaBörn & fjölskyldur

Svakalega sögusmiðjan | Bestu vinir

Hvenær
Laugardagur 21. nóvember
kl. 13:00–15:00
Hvar
Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41

Finnst þér gaman að skrifa og teikna? Viltu búa til sögur? Komdu í sögusmiðjuna og lærðu að búa til fyndnar og spennandi sögur. Þemað í sögusmiðjunni er vinátta.

Eva Rún Þorgeirsdóttir, rithöfundur, og Blær Guðmundsdóttir, teiknari, gáfu út bókina Bestu vinir á dögunum og ætla af því tilefni að halda sögusmiðju þar sem þemað er vinátta. Þær hafa búið til fjölmargar barnabækur og kennt krökkum um allt land að semja sögur í Svakalegu sögusmiðjunni. Bestu vinir hlaut barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur árið 2026.

Athugið: skráning nauðsynleg! Smiðjan hentar börnum frá 9 til 12 ára.

Nánari upplýsingar veitir:  Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur   astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6250

Opna í Google Maps

Meira á sama stað

Heimild: reykjavik.is. Eitthvað rangt? Láttu okkur vita.