Púsl á alla kanta
- Hvenær
- Laugardagur 14. nóvember
kl. 13:00–15:00 - Hvar
- Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41
Að setja saman púsluspil er áhugamál sem flest stunda rólegheitum heima hjá sér, en samfélagið er ansi fjölbreytt. Sum kjósa að setja saman púsl með mörg þúsund bitum á meðan önnur láta sér nægja að púsla minni púsl. Með tilkomu hraðpúsls sem keppnisgreinar hefur flóran orðið enn fjölbreyttari.
Púsl á alla kanta er nú haldið í þriðja sinn. Sama hvernig púslari þú ert, þá er hér tækifæri til að hitta aðra púslara, prófa eitthvað nýtt og eignast ný púsl.
Á viðburðinum verður:
· Skiptimarkaður þar sem hægt er að kaupa notuð púsl eða skipta.
· Kynning á hraðpúsli.
· Hægt verður að grípa í púsl eða púslskák.
· Happdrætti í gangi með glæsilegum vinningum. Dregið í lok viðburðar.
· Hringrásarborðið þar sem hægt er að taka og/eða skilja eftir púsl eins og hver vill. Restin fer í Fríbúðina Gerðubergi.
Þeim sem hafa áhuga á að vera með borð á skiptimarkaðnum er bent á að takmarkað pláss er í boði og seljendur / bíttarar þurfa að skrá sig fyrirfram, með því að senda tölvupóst á berglindsh@gmail.com. Greiða þarf 1000 krónur til að taka frá borð sem verða endurgreiddar við mætingu.
Skipuleggjendur viðburðarins eru Berglind S. Heiðarsdóttir, Heiða Sigurjónsdóttir og Svandís Sigurjónsdóttir áhugafólk um púsl.
Allir púslarar velkomnir, byrjendur sem lengra komnir!
Nánari upplýsingar veitir: Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6250
Meira á sama stað
Heimild: reykjavik.is. Eitthvað rangt? Láttu okkur vita.














