Sögustund fyrir fjölskylduna
- Hvenær
- Þriðjudagur 17. nóvember
kl. 16:30–17:30 - Hvar
- Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41
Verið velkomin á bókasafnið að hlusta á sögu fyrir alla fjölskylduna. Lesin verður sagan Berglind elskar Rúsínu eftir Annica Hedin og Per Gustavsson.
Berglind er að fara í afmæli og á að velja gjöf fyrir afmælisbarnið. En stundum er erfitt að gefa öðrum gjöf þegar maður vill sjálfur eiga gjöfina… hvað er þá til ráða?
Eftir upplesturinn er boðið upp á skemmtilegt föndur.
Sögustundirnar í Borgarbókasafninu Spönginni fara fram þriðja þriðjudag hvers mánaðar. Þær eru í Sjónarhóli, sýningarsal bókasafnsins.
Öll velkomin.
Nánari upplýsingar veitir: Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6250
Meira á sama stað
Heimild: reykjavik.is. Eitthvað rangt? Láttu okkur vita.














