Komdu að syngja!
- Hvenær
- Laugardagur 28. nóvember
kl. 13:00–13:45 - Hvar
- Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41
Nú verða raddböndin þanin og slegið á létta strengi í Spönginni.
Gítarleikarinn og gleðigjafinn Valli leiðir samsöng þar sem helstu perlur íslenskrar dægurlagasögu verða á boðstólum. Eitthvað gamalt og gott sem flest ættu að þekkja!
Tilvalið er að mæta með alla fjölskylduna – nú eða vinir og vinkonur að taka sig saman og mæta í söngstund. Engrar söngkunnáttu krafist, öll syngja með sínu nefi.
Það er allt í lagi þó að þú kunnir ekki textann, hann verður á skjá svo söngurinn verður leikur einn.
Komdu að syngja er á dagskrá einu sinni í mánuði fram á vor á Borgarbókasafninu Spönginni.
Öll hjartanlega velkomin!
Nánari upplýsingar veitir: Valgeir Gestsson valgeir.gestsson@reykjavik.is | 411 6100
Meira á sama stað
Heimild: reykjavik.is. Eitthvað rangt? Láttu okkur vita.














