Hannyrðastund í Spönginni
- Hvenær
- Fimmtudagur 24. desember
kl. 13:30–14:30 - Hvar
- Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41
Ertu með eitthvað á prjónunum? Ertu að hekla fallegt sjal eða sauma út púða?
Á fimmtudögum kl. 13:30-14:30 er hannyrðastund í Borgarbókasafninu Spönginni frá september fram í lok maí. Öll velkomin, byrjendur og lengra komin, í notalega stund í blágrænu sófunum á annarri hæð.
Við spjöllum um daginn og veginn, fáum okkur kaffi og sinnum handavinnunni í góðum félagsskap.
Við eigum líka mikið úrval af alls kyns bókum og tímaritum um handavinnu sem hægt er að sækja innblástur í og grípa með sér heim.
facebook síða viðburðar: https://www.facebook.com/events/3827674397369058/3954429324693564/
Meira á sama stað
Heimild: vikaeinmanaleikans.is. Eitthvað rangt? Láttu okkur vita.














