Brynhildur Þorgeirsdóttir - Heimildarsýningu á Korpúlfstöðum
- Hvenær
- Fimmtudagur 12. nóvember
kl. 14:00–16:00 - Hvar
- Korpúlfsstaðir – SÍM og Hlöðuloftið
Korpúlfsstaðir
Brynhildur Þorgeirsdóttir opnar Heimildarsýningu á Korpúlfstöðum.
Opið mánudaga-sunnudaga frá 18 október - 15 nóvember.
Sögustund alla fimmtudaga ásamt fleiri viðburðum, sjá hér að neðan.
Þar gefst einstakt tækifæri til að skyggnast inn í heim Brynhildar og kynna sér störf myndhöggvara. Brynhildur mun vinna að nýjum verkum á meðan á sýningunni stendur og gestum býðst að koma og spjalla við hana á meðan hún vinnur.
“Brynhildur hefur tekið það upp hjá sjálfri sér að fara í gegnum allt sem á daga hennar hefur drifið í myndlistinni. (Svo að enginn annar þurfi að standa í þessu). Það liggur allt undir; myndir, sýningaskrár, módel og öll gögn. Allt er flokkað og skráð í þar til gerðar heimildarmöppur, svo fletta megi upp í því síðar. – Þetta verður bara gert einu sinni – Allir skúlptúrar eru skráðir í hús og þeir sem enn eru í móðurhúsum eru sendir upp á Korpúlfsstaði (gömlu vinnustofuna) ásamt möppum og módelum. Þannig næst einstök innsýn í störf myndhöggvarans. – Heimildarsýning. –
Hún býður okkur að „Buy my art before I die “ við erum hvött til að fjárfesta í framtíðinni með listaverkakaupum á afborgunum.”
Metnaðarfull dagskrá varpar ljósi á allar hliðar listsköpun myndhöggvarans allt frá hugmynd að veruleika. Það verður m.a. boðið upp á sögustundir, glerblástur og heimsókn á Vinnustofu Brynhildar á Bakkastöðum.
Skúlptúrarnir á sýningunni spanna allan ferilinn frá 1983 – 2026
Dagskrá sýningarinnar:
- Opið miðvikudag til sunnudags kl. 14:00 – 18:00
- Sögustund alla fimmtudaga kl. 16:00
- Sunnudag 18.10. Kl.15:00. Listamannaspjall
- Sunnudag 1.11. kl. 15:00. Glerblástur á Korpúlfsstöðum með Carissa Baktay
- Laugardag 14.11. kl. 15:00. Opin vinnustofa á Bakkastöðum 113, með Páli Hjaltasyni artitekt.
- Sunnudagur 15.11. kl. 15:00. Lokun.
Opið fyrir hópa eftir samkomulagi í síma 895 9897
Þriðja auga sýningarinnar: Hildigunnur Birgisdóttir
Meira á sama stað
Heimild: facebook.com. Eitthvað rangt? Láttu okkur vita.














