Bókaklúbbur Grafarvogskirkju
- Hvenær
- Fimmtudagur 26. nóvember
kl. 17:00 - Hvar
- Grafarvogskirkja
Fjörgyn - Skipuleggjandi
- Grafarvogskirkja
Bókaklúbburinn hittist í Sölku Bókabúð við Hverfisgötu 89-93 fimmtudaginn 26. nóvember kl. 17. Við ætlum að spjalla almennt um bækur og jólabókaflóðið en líka spjalla um bókina Stargate eftir Ingvild H. Rishøi. Fyrir þau sem vilja er hægt að halda þaðan á Telebar þar sem jazzkvöld hefst 18.00 en Hjörtur Stephensen leikur á gítar, og Freysteinn Gíslason kontrabassa.
Aðeins um bókina: Stargate er jólaævintýri úr samtímanum sem fjallar um fullorðna sem villast af leið og börn sem þrá ekkert heitar en að þau læri að rata.
Pabbi Ronju og Melissu hefur fengið starf sem jólastréssölumaður og jólunum virðist bjargað. En kráin Stargate og bjórinn sem þar flæðir hefur ekki misst aðdráttarafl sitt. Þegar pabbinn skiptir ullarpeysunni og grenitrjánum aftur út fyrir leðurjakkann og drykkjufélagana taka systurnar til sinna ráða og fá í leiðinni að kynnast því að bæði grenigreinar og ólíklegasta fólk geta veitt skjól undir köldum himni heimsins.
Ingvild H. Rishøi (1978) er stjarna í bókmenntaheimi Noregs og bækur hennar hafa verið þýddar á mörg tungumál. Stargate er saga sem lifir með lesandanum lengi, lengi.
https://www.penninn.is/is/book/stargate-jolasaga
Meira á sama stað
Heimild: grafarvogskirkja.is. Eitthvað rangt? Láttu okkur vita.














